Hjá GOF er vilji til að safna saman upplýsingum um uppbygginguna í Urriðavatnsdölum.
Allar upplýsingar um sögu GOF eru vel þegnar í máli og myndum.


Ef þú hefur upplýsingar sem þú vilt deila með lesendum, þá er best að hafa samband með því að smella <hér>.

Áhugasömum sem vilja lesa um aðdragandann að stofnun GOF og nýtingu Urriðavansdala vil ég benda á ritverkið TRAUSTIR HLEKKIR sem fjallar um þróun Oddfellowreglunnar á Íslandi og rekur þennan þátt í sögunni mjög vandlega.

Neðar á þessari síðu munum við birta frásagnir þeirra sem tóku þátt í brautryðjendastarfinu í Urriðavatnsdölum.

En fyrst bendum við lesendum á að skoða myndina hér fyrir neðan og skýringarnar sem þar eru. Smelltu síðan á myndina. Þá er hægt að virða fyrir sér breytinguna sem hefur orðið á svæðinu. Veldu einfaldlega ártal sitt hvoru megin við stikuna í miðjunni og þá kemur breytingin í ljós.

Í upphafi var óbrotið land í Urriðavatnsdölum

Urriðavöllur opnar sem 18 holu golfvöllur árið 1997

18 holu Urriðavöllur var vígður 8. ágúst árið 1997 en hafði fram að þeim tíma verið 9 holu völlur frá árinu 1990. Við hönnunina var höfuðáhersla lögð á að nýta sérkenni landslagsins. Undir hraunjaðrinum eru margar holuflatir þannig að jaðarinn myndar fagurt baksvið. Þá eru teigar uppi í hraunjaðrinum til þess að skapa yfirsýn yfir brautina framundan. Ein hola er að öllu leiti inni í hrauninu. Efstu holur vallarins eru í 100 metra hæð yfir sjó, en flestar þeirra í 60 – 70 metrum yfir sjó. Öllum brautum vallarins hafa verið gefin heiti, sem sótt eru í gömul örnefni eða landslag í Urriðakotslandi. Nafn hverrar brautar er skráð á stuðlabergsstöpul og ennfremur er þar mynd af brautinni og lengd tilgreind.

Við hönnun Urriðavallar var sú hugsun fyrst og fremst höfð að leiðarljósi að hann væri skemmtilegur klúbbvöllur frekar en erfiður keppnisvöllur. Helstu kylfingar landsins hafa þó fengið að kynnast því að hann er engan veginn auðveldur viðfangs af öftustu teigum og sómir hann sér því einnig vel sem keppnisvöllur.

Enginn getur á móti því mælt að golfvöllurinn í Urriðavatnsdölum er í fögru umhverfi þar sem aðstaðan og umgengni er til fyrirmyndar. Kylfingum skal svo eftirláta, hverjum og einum, að dæma um hann að öðru leyti.

Árið 2004 var nýr og glæsilegur golfskáli vígður.

Árið 2004 var vígt stórglæsilegt 350 fermetra veitinga- og klúbbhús á Urriðavelli. Þar er afgreiðsla ásamt verslun með helstu nauðsynjavörum golfarans. Þar er einnig búnings- og salernisaðstaða. Skrifstofa framkvæmdastjóra er inn í klúbbhúsi ásamt vel útbúinni setustofu. Veitingasalurinn rúmar um 120 manns og eldhúsið er búið öllum helstu og bestu tækjum og tólum. Frá veitingahúsinu er útsýni gott fyrir völlin og bæði 9. og 18. hola staðsettar beint fyrir framan húsið.

Það sem ég vildi sagt hafa…

Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi